[TYPO3-translators] Icelandic translation

Sakarias Ingolfsson sakki at sakki.net
Wed Feb 28 11:06:28 CET 2007


Sælir verið þið allir Íslendingar á þessum lista

Ég hef að undanförnu verið að þýða allar grunnskrár kerfisins á minni 
eigin tölvu, þ.e. einungis sjálft grunnkerfið, ekki CSH eða 
kerfisviðbætur. Nú er ég kominn með beta útgáfu af íslenskunni og ég 
setti hana inn á þýðingarþjóninn í gær. Ég geri ráð fyrir því að einginn 
hafi neitt út á það að setja.

Eins og fram kom á listanum í gær er nýji þýðingarþjónninn staðsettur á 
slóðinni:
http://217.29.33.86/translation/typo3/

Endilega kíkið á þýðinguna. Nú þegar ætti að vera hægt að sækja hana í 
gegn um "extension manager" (eða í liðnum "kerfisviðætur" í íslensku 
þýðingunni). Mér þætti gaman að fá einhverjar hugleiðingar um þýðinguna.

Sjálfur hef ég á tölvu minni einnig þýðingu á kerfisviðbótunum 
templavoila, tt_news, ve_guestbook og goof_fotoboek. Ef þið viljið fá 
þessar þýðingar megið þið endilega hafa samband.

Kveðja,

Sakarías Ingólfsson
http://www.sakki.net/


More information about the TYPO3-translators mailing list